10 janúar 2006

Rumor has it ..... OR NOT !


Skellti mér í bíó með þeim stöllum Nínu Björk og Guðrúnu... Sem er kannski ekki frá sögum færandi nema fyrir þær sakir að hann Oddur Bjarki, 6 ára frændi Nínu, var búinn að þrýsta á okkur að sjá hana.. Þetta væri svona ekta stelpumynd og hélt hálftíma heimspekilega umræðu um að þetta væri svo mynd um stelpu sem hefði "ruglast á ástum". Humm sögðum við.. og fengum þá þessa fínu útskýringu að það væri þegar stelpa væri skotin í manni sem væri svo skotinn í einhverri annari stelpu...Svo sem ekkert vitlaust hugtak. Hvað segið þið um það?

Nema hvað.. Við skelltum okkur á gott stelpukvöld í bíó.. og við vorum bara ekkert sáttar við þessa mynd.. Það bara gerðist hreinlega alls ekki neitt í myndinni...urðum bara svekktar..
Sæt skvísa á borð við Jennifer Aniston og töffarar á borð við Kevin Coster og Mark Ruffalo Buffalo Smöffaló.. og bara ekkert að gerast... pjumfff..
Well verðum að velja betri mynd næst stelpur...

4 Comments:

Blogger Unnur Stella bullaði...

Ummm.... Kevin Coster og Mark Ruffalo Buffalo.....þarf nokkuð annað að gerast. Nóg fyrir okkar augu og Jennifer fyrir karlsins augu....ágætt :o)

Annars er ég ekki búin að sjá myndina.

Kveðja úr Álaborginni

09:23  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Svona myndír á að banna í bíó og setja beint í bíó...leggja þetta fyrir nefnd:)

15:03  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

vááááááááá beint á spólu meina ég!!! Ég er halló :( nú fer ég að skríða undir stein

15:05  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

þú ert líka geðveik Guðrún ;)
Held þú ættir samt að sleppa því að skríða undir stein.. því þú ert svo obbbboðslega falleg og þá myndi bara ekkert sjást í þig...

15:48  

Skrifa ummæli

<< Home