02 maí 2008

Master of Science!



2. maí 2008

.: Í dag verð ég meistari :.

20 apríl 2008

Ég held ég tali doldið mikið í símann.......

18 apríl 2008

Bömmer!

ohhh mig dreymdi að enginn hér í ameríku væri að ráða fólk sem hef'ði eftirnafnið -dóttir!
plús það var Margrét leikfimiskennari sem hvíslaði þessum leyndardómi að mér!

17 apríl 2008

Ja hérna hér!

Ég á nú bara ekki til orð!

Sýknaður af bótakröfu vegna misheppnaðs golfhöggs

Meikar eiginlega bara ekki sens.... og hann hafi NÁNAST misst sjónina á auganu? hummmm
Auðvitað var þetta bara slys og slys eru í flestum tilvikum óviljandi... eða misheppnaðar tilraunir eins og í þessu tilviki en þessi dómur er algjörlega út í hött!

11 apríl 2008

So true ;)

Af mbl.is
Naut: Hvað sem kemur í veg fyrir áætlaðar skemmtanir er ekki nógu gott. Reddaðu því á svipstundu. Það eina sem er einhvers virði er ánægjuleg reynsla þín.
Enda er springfestival á morgun... Ludacris með tónleika í skólanum mínum og ossa gaman ;)

31 mars 2008

YO!

Mamma og pabbi voru að koma í heimsókn... mmmm pöntuðum okkur Haru sushi og steik heim... jumm jumm jumm...
Pabba er kalt... hitinn er á... mér er heitt....
Ætlum að gera eitthvað skemmtilegt á morgun...
LáRa

28 mars 2008

Ég er alveg ennþá á lífi..

... og meira en vel það ;)
Af mér er bara allt stórkostlegt að frétta.. eins og fyrri daginn..
Skrapp heim til Íslands í Spring Breakinu í 10 daga og var það yndislegt til að hlaða batteríin og knúsa vini og fjölskyldu. Er nokkuð stollt af því hvað ég optimizaði þetta vel og náði því að hitta nánast alla mína bestu vini. Sérstaklega ánægð með að hafa skellt mér í dinner með Magneu og Lilju og slúðrað aðeins og að hafa kíkt til hennar Silju minnar.. Silja það er eins og við hefðum bara hist í gær.
Nína hélt upp á 7 ára (28ára) afmælið sitt þann 29 febrúar og af því tilefni skelltum við okkur á Domo í ossa gott sushi í stórum góðum vinahóp. Síðan var tjúttinu haldið áfram í Skipasundinu og eins og okkur er einum lagið ... dönsuðum við á dansgólfinu í stofunni með diskóljós fram á rauða nótt... Bryndís þú ert æði!
Skrapp upp á Skaga til Huldu minnar og það var gaman að sjá hvað þau eru búin að koma sér vel fyrir. Síðast en ekki síst hélt ég yndislega skemmtilegt matar-potta-og-gufu partý fyrir stelpurnar á föstudeginum áður en ég kom aftur út...
Það er amk nokkuð víst að ég á bestu vini í heiminum!
Það er búið að vera nóg að gera á öllum vígstöðum síðan ég kom aftur út. Ég er formlega búin að taka ákvörðun að vera hérna úti í eitt ár í viðbót.. búin að skrifa undir ársframlengingu á leigunni og búin að sækja um OPT pappírana... svo núna er bara að finna vinnu.. anyone??
Þið sem eigið eftir að heimsækja mig .. já eða viljið koma aftur hafið því ár í viðbót ...
Ég útskrifast 2 maí nk. og byrja ekki að vinna fyrr en í fyrsta lagi 2. júlí þannig að ef einhver er að láta sig dreyma um sumarfrí á þessum tíma þá er hann velkominn að njóta þess hérna með mér í Boston... því ekki kemst ég heim til Íslands fyrr en ég er komin með vinnu....
Framundan er alveg hellingur að gera.. Mamma og Pabbi koma hingað 31.mars nk og verða í nokkra daga... svo eru JayZ - MJB tónleikarnir ... og svo kemur Nína 24.apríl... og svo mamma pabbi og Gerða 1. maí... öll til að vera viðstödd útskriftina mína... Það verður eflaust margt og mikið skemmtilegt brallað þá.
Og hei.. eitt í viðbót... Jeiii ég var að kaupa mér Blackberry... jeiiiiii
Lofa að láta ekki svona langt líða þangað til næst....sendi spes knús til Birnu Lillý.... langar svo að hitta þig... Biggi.. vertu duglegur að setja inn myndir fyrir Láru frænku í Ammmríku.

25 mars 2008

Prinsessssssssaaaaa :)

Já, ef það er ekki tilefni til að blogga í dag... þá veit ég ekki hvað!

Litla prinsessan ákvað loksins að láta sjá sig... verður eflaust algjör dekurrófa eftir að hafa látið mömmu sína og pabba bíða svona lengi eftir sér.

Til hamingju elsku Guðrún og Bigginn minn!!!

12 febrúar 2008

Just Fine Fine Fine Fine....

Mary J. Blige & Jay-ZEf þetta verða ekki einhverjir mögnuðustu tónleikar sem ég á eftir að fara á... tja þá verð ég hlessa! Can´t waiiiiiiiiiiit :) og bara svona til að vekja meiri öfund þá eigum við sæti í section B!

01 febrúar 2008

Homeless in Boston...

Átti skemmtilegt spjall við heimilislausan mann á Boylston street með vinum mínum úr skólanum í gær.. Hann var að spjalla við okkur um daginn og veginn...
Homeless guy: "What nation are you from?"
We all: " Ísland, Noregur, Pakistan, Úkraína etc..."
Homeless guy: " Ohh I thought you were from doNation?"
.....
Síðan ákvað hann að tjá sig aðeins um ástarmálin sín...
" You know.. I only date homeless giRLs.. because after the date... I can just drop them home anywhere I want! :)"
HHP - húmors- heimilislaus piltur þar á ferð ...