30 október 2006

Frábær helgi

...og verður bara enn betri vika!

Jamm, mamma og pabbi komu á föstudagskvöldið og var obbbbboðslega gott að sjá þau.
Ekki skemmdi fyrir að með í för var allskonar íslenskt góðgæti, appelsín, malt, flatkökur, smurostur, piparostur, mexíkanskur ostur, kæfa, prins póló, ópal, harðfiskur og annað gúmmilaði. Við skruppum á Sushi staðinn í götunni minni og röltum aðeins um hverfið. Á laugardaginn var svona líka úrhellisrigning þannig að það var ekki mikið um rölt þar af leiðandi. Hins vegar kíktum við í tvö mall með ekkert rosalega góðum verslunarárangri. En engu að síður mjög skemmtilegt.
Við áttum síðan kósí kvöld heima og skildi ég síðan unglingana mína eftir heima meðan ég skrapp út með Dodda, Ásdísi, Möggu og Gumma.
Þetta endaði með að vera alveg hreint ótrúlega skemmtilegt kvöld.Fórum á uppistand með Eddie Griffin, Undercover Brother og Duece Bigalow og fl. og var það hin tærasta snilld. Hann var ekkert smá fyndinn og skemmtilegur... ekki skemmdi líka fyrir að hálft Boston Celtics liðið sat á borðunum fyrir aftan okkur.Eftir uppistandið fórum við á klúbba.... byrjuðum á öðrum... og síðan vildi Gummi óður kynna okkur fyrir kúl klúbb hérna í Boston... kunni sko stystu leið þangað ha ha hummm... en að lokum komust við á leiðarenda og á svona líka skemmtilegan klúbb. Gummi þú ert snillingur.
Takk kærlega öll sömul fyrir frábært kvöld.
Núna verð ég hins vegar að segja stopp því Ásdís er að koma og sækja mig og ég er að fara út á völl að sækja næsta holl.... Vilborg og Nína mínar eru að koma til mín !!!! JEIIIIIII
Heyri betur í ykkur seinna..

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

Hæ sæta
Gaman að fá fréttaskot af þér - vona bara að þú njótir félagsskaparins og verðir samt líka dugleg að læra.
Ég hugsa til ykkar - vildi að ég væri þarna.......
Knúsur
Dagga

05:57  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Vá bara mikið að gera há þér allir að koma í heimsókn en vona að Þú hafir skemmt Þér vel ég hef ekkert getað talað við þig því að það kom vírus í tölvuna mína :( en hun er nuna í viðgerð og ég er síðan að fara í vetrarfrí og örugglegaa uppí búrstað en segji þér það em ég hef verið að gera og þú segjir ér það sem þú ert búin að gera (K)(L) vona bara að heyra í þér sem fyrst hlakka rosalega til þess að sjá þig um jólin KNÚS OG KOSSSAR (L)(K)(L)(K)(L) kv. Arna Rán :)

11:47  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Hey það má ekki gleyma að blogga þó að það séu gestir! Vill fá að vita hvað þið eruð að bralla þarna.
Frekjukveðjur
Dagga ;)

05:00  

Skrifa ummæli

<< Home