26 janúar 2006

Áfram Ísland!

Jeiii.. Ísland vann Serbíu / Svartfjallaland 36-31 í stórskemmtilegum leik sem var rétt í þessu að enda. Alveg hreint frábærlega stórkostlegt! Stefnir í allsherjar skemmtilega handbolta helgi!
Svo er það bara Ísland - Danmörk kl 19.15 á morgun og Ísland - Ungverjaland kl 17.00 á sunnudaginn! Koma svooooo strákar - við rúúúústum þessu bara!

Annars er bara allt gott að frétta.. alltaf jafn crazy að gera í vinnunni. Kíkti með Elvu Rósu á Vegamót á þriðjudaginn. Var alveg kominn tími til að hittast og spjalla aðeins! Enda kjaftað um allt milli himins og jarðar! Verðum að gera þetta sem fyrst aftur skvísa :)

Í kvöld er mér svo boðið í pókerveislu til Ólafar.. Íris frænka var hjá þeim um daginn og skemmti sér svona líka rosalega vel og var við það að panta miða til Vegas. Þannig að ég ætla að kíkja til þeirra í kvöld og læra að spila póker :) Haldiði að það sé ..!

Þangað til næst...out.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

Og afhverju var mér ekki boðið???

19:19  

Skrifa ummæli

<< Home