17 mars 2006

Hversu vel þekkir þú mig?

Hæ þið.. haldið þið að ég hafi ekki nælt mér í þessa fjárans pest. Eins og þeir sem þekkja mig best vita að þá get ég hreinlega ekki sest niður og slappað af.. ég er ekki þessi týpa að liggja upp í sófa og hafa það gott og glápa á TV.. ég verð alltaf að vera að gera eitthvað og þess vegna er hreinlega ótrúlega pirrandi að liggja heima veikur! Fyrir utan það að þessi pest er víst heillengi að fara úr manni! Fjúff ég hef nú bara hreinlega alls ekki tíma fyrir svoleiðis rugl!
Annars vildi ég nota tækifærið og þakka fyrir öll kommentin á færslunni hérna á undan..
Sérstakar þakkir fá Bostoníu vinir mínir Ásdís, Doddi, Magga og Gummi fyrir að ætla að aðstoða mig við íbúðarleitina góðu...
Ákvað að fara að fordæmi Huldu og setja upp svona skemmtilegt Quiz.. verður gaman að sjá hvað kemur út úr því...
Endilega svaraðu spurningunum með því að nota þennan link
http://www.quizyourfriends.com/yourquiz.php?quizname=060317090632-835915&

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

Iss ég klúðraði þessu alveg - 2 spurningar sem ég fattaði að ég var að gera vitlaust um leið og ég var að smella á rangt svar!! Alger lúði!!
En Darling Lára, láttu þér batna vona að þú verðir ekki lengi að ná þessu úr þér því ég get ekkert verið neitt lengi Láru-laus í vinnunni :( Það er alveg vonlaust sko!!
Knúsur

Ps: núna hef ég engann til að horfa á Idolið með :(

11:02  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Hei :S hvað er málið með skóstærðarspurninguna, mér fannst hún svindl, arggggggg:)

04:12  
Blogger Unnur Stella bullaði...

Jæja gella,
nú er alveg að koma nýr mánuður. Er ekki við hæfi að þú skrifir allavega eina færslu til viðbótar í þessum mánuði svo við sem ekki getum hitt þig daglega fáum að fylgjast með hvað þú ert að bralla?

Kveðjur úr Álaborginni.

04:54  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Jæja á ekki að fara blogga meira!!
Mætti halda að þú værir í saumaklúbbum á hverju kvöldi;)

13:01  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Hvað fæ ég í verðlaun fyrir að vera gestur nr.3000?

12:27  

Skrifa ummæli

<< Home