03 apríl 2007

Sápa Sápa Sápa

hurru... það er kveikt á sjónvarpinu mínu og ég verð bara að segja það að mér finnt bara doldið ruglandi og óþægilegt að Macy og Rick úr Bold and the Beautiful séu bara allt í einu komin í aðra sápu, All my Children... Nógu mikið bull er þetta samt... Macy dáin í einni seríu... fær hærri laun í hinni... fer þangað.. deyr þar... fer annað... Ég sem hélt að þetta væri alvöru fólk og væri til í alvörunni! Er ég búin að lifa í eintómri blekkingu?
Er sem sagt Brooke ekkert skotin í Ridge... já eða Nick, já eða var það Thorne.. já eða Eric... æi þeir eru allir bræður, feðgar eða afasynir...Og greyið Taylor sem át úldna rækju og vörin stækkaði.. hvort ætlar hún að vera með Ridge, Thorne eða Nick... Djís... og elsku "fyrrverandi systkinin núverandi stjúpsystkin" Rick og Phoebe eru svo ástfangin....
Mér finnst þetta allt svo eðlilegt.....
Nei ég meina ekki það að ég sé að horfa á þetta?

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

jáhá þú skilur ekkert í þessu. Hvernig heldur að ég sé þegar ég er að lesa þetta hjá þér eða sé þetta í sjónvarpinu. Það eru allir eins í þessum þætti og ég get ekki vitað hver er hvað. Þetta er bara vel þeyttur hafragrautur

18:13  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

já mikið er ég sammála þér, það var alveg nóg fyrir mig að Taylor kom, og greinilega búin að fá fyrir allan peningin smá fyllingu hér og þar. þetta er nú meira bullið. ég botna hvorki upp né niður í þessu öllu saman og ákvað það bara að hætt að horfa á þetta og hana nú ;)

09:49  

Skrifa ummæli

<< Home