06 apríl 2007

Ásta Lovísa

Ég hef fylgst lengi með síðunni hennar Ástu Lovísu og fylgst með baráttu hennar við krabbameinið. Staðan í dag er hins vegar ekki góð og bíður Ásta Lovísa eftir því að fá að komast til New York, þar sem er eitt besta krabbameinssjúkrahús í heimi. Meðferðir og lyf á Íslandi hafa ekki borið árangur og því á að athuga með að fá meðferð þar.
Þetta er ung stelpa á okkar aldri og get ég ekki ímyndað mér hvað hún er ganga í gegnum og hvernig henni líður. Ég held að minnsta kosti að peningaáhyggjur á þessari stundu séu ekki eitthvað sem hjálpa henni í veikindunum.
Það er búið að setja upp upplýsingar um styrktarreikning á síðunni hennar og skora ég á alla sem hafa aðstæður til að láta gott af sér leiða og létta undir baráttunni hjá Ástu Lovísu.
Bankaupplýsingar: 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469
Ég er að minnsta kosti búin að leggja mitt af mörkum og vona að sem flestir geti gert slíkt hið sama.
Hafið það gott um páskana elsku dúllurnar mínar..
LáRa

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

Stúlkan er í mikilli baráttu og vonandi hefur hún betur. Eins og þú segir er ekki auðvelt að setja sig í hennar spor, en við það að lesa hennar frásögn gerir maður sér sífellt betur grein fyrir hversu gott maður hefur það.

Við óskum þér gleðilegra páska músin mín. Og hafðu það gott í útlandinu

kv, Villý og Ölli

06:28  

Skrifa ummæli

<< Home