21 september 2007

So you think you can dance!

Þannig er mál með að ég hreinlega elska þessa þætti og fylgdist vel með þeim heima á Íslandi í sumar :) Þau eru ekkert smá góð og fljót að tileinka sér nýjar dansaðferðir á no time. Enda voru sumir dansarnir ógeðslega flottir. AMK þeir sem þekkja mig vel vita að ég er idol fan og núna líka So you think you can dance fan :) Nema hvað........ 10 efstu dansararnir fara núna á túr um öll Bandaríkin og byrja að sjálfsögðu í Boston baby.... Ég er búin að vera að kíkja á miða alveg í heilan mánuð en það hefur alltaf verið uppselt. Showið er sem sagt á morgun þannig að allt í einu datt mér í hug að kíkja hvort það væru ekki til miðar .. og viti menn... tveir miðar á bara nokkuð góðum stað held ég barasta... Þannig að ég hringdi í Möggenstein og hún hafði einmitt haft það í huga að fá mig eitthvað út með sér þannig að við ákváðum bara saman að skella okkur á So you think you can dance annað kvöld :) Vá hvað ég hlakka til að sjá alla þessa dansara og flottu dansana þeirra jeiiiii :)

P.S. Guðrún sæta mín - til hamingju með afmælið í dag... Hafðu það gott í Þýskalandinu...

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

oohhh frábært ... langar ekkert smá með þér. þú verður sko að segja mér allt. djö hvað það er næs að búa í útlöndum.
koss koss og knús Bryndís

11:35  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Hí hvað ég hlakka til, erum við ekki við sviðið? Fáum við þá svona svita skvett á okkur?
Sjáumst á eftir, Daníel sefur og sefur hann er að undirbúa sig undir vökumaraþonið á eftir.. þegar þú kemur og passar..muhaha

12:46  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

júmm við erum amk niðrá gólfi... ekki lengst uppí rassgatið... pant fá svitann af danny á mig :)

Jeiiii það verður bara gaman að hafa hann vakandi... þá get ég bara knúsað hann og knúsað

Hlakka til að sjá þig á eftir

14:17  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

Bryndís: þú verður bara að fara að drullenstein þér í heimsókn... boston is the place to be sko :)

14:18  
Blogger Inga Rut bullaði...

Vá hvað ég væri til í að fara á þetta show með ykkur!!

04:50  

Skrifa ummæli

<< Home