11 nóvember 2006

Hver er maðurinn?

Á daglega bloggrúnti mínum þennan daginn lenti ég inn á síðu hjá fólki sem ég þekki ekki neitt... en þar var alveg hrikalega skemmtilegur leikur í gangi... HVER ER MAÐURINN!
Nú er ég búin að hugsa einstakling og bið ykkur, kæru lesendur, að hefja leikinn hér í kommentunum hér fyrir neðan. :)

35 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

Er þetta karlmaður?

P.s. hvað er í verðlaun?

15:04  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Er þetta íslendingur

15:05  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

íslenskur já... karlmaður já...

15:07  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Doddi litli

15:09  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

hehe nei ekki alveg... enda er bannað að giska á nafnið strax... vil vísbendingar..

15:11  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Er hann loðinn

15:11  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

humm... loðinn... hvaða skrýtnu hugsanir eru í hausnum á þér íris mín..... ég veit ekki... neibb held hann sé ekkert svo loðinn... :)

15:13  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Er hann listamaður?

15:15  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Er hann lifandi?

15:16  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

er hann fráskilinn að austan

15:16  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

ekki as in málari söngvari.. en að vissu leiti listamaður...

15:16  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

Hann er lifandi...
fráskilinn að austan? Er loftið eitthvað skrýtið í Danmörku?
Hann er allavegana í sambandi núna... veit ekki um fyrri sambönd..

15:18  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

er hann milli tvítugs og þrítugs

15:19  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

bannað að giska á nöfn... þeir fá mínus í kladdann.... fyrr en þeir hafi 100% sannanir að þetta sé rétti maðurinn :)

15:19  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

nei ekki milli tvítugs og þrítugs

15:20  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Loftið er nefnilega nokkuð ljúft hérna í DK.

Er hann dökkhærður?

Er hann ljótur?

15:22  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Á hann börn?

Er hann svona KARLmaður eða tittlingaskítur?

15:23  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

Ekki ljótur.. ekki dökkhærður... hann á börn..

15:24  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

það fer eftir skilgreiningunni þinni á karlmaður og tittlingaskít.. held hann flokkist án efa undir karlmannsflokkinn

15:25  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

þetta var bara smá grín. Karlmaður meinti ég með svona bara ekta karlmanni en hitt átti bara að vera hvort hann væri svona hvort hann væri svona renglulegur :), ég er bara með smá svefngalsa...

Hmm en þetta er erfitt!
Er hann sjónvarpsmaður?
Ef svo á stöð 2 eða rúv?

15:37  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

Hann er sjónvarpsmaður... hefur held ég verið á báðum... amk. öðrum

15:44  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Er hann milli þrítugs og fertugs?

Er hann leikari?

Er hann stjórnmálamaður?

15:45  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

hann er ekki leikari sem starfsheiti en hefur án efa leiklistarhæfileika... nei.. hann er ekki stjórnmálamáður

15:46  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

er hann ljóshærður?

fréttamaður?

15:53  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

hann er ljóshærður...
já og fréttamaður

15:54  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

er hann á stöð 2 núna sem fréttamaður?

15:56  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

þú ert ekki búin að svara öllum spurningunum mínum!

Er hann enn að lesa fréttir?

15:57  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

hann er eldri en fertugt. hann hefur gaman að því að lesa fréttir. Vinnur núna sem fréttamaður.

16:01  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

Meðal annars hefur hann unnið á Stöð 2, RÚV, Skjá einum og Fréttablaðinu

16:02  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Sigmundur Ernir Rúnarsson

I rest my case

16:03  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Er þetta Sigmundur Ernir?

16:04  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

Rest in peace my friends því da da ramm... you have found the correct answer :) Jeiiiiii

Næsta þraut verður miklu miklu erfiðari :)

16:05  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Ég var með þennan gauk ansi lengi í kollinum en var samt efins þegar þú sagðir að hann væri ekki ljótur (sorrý), líka þar sem ég hélt að allir vissu að hann hefði verið giftur konunni sem hann átti fötluðu stelpuna með (barn að eilífu)

16:08  
Blogger Lara Gudrun bullaði...

jamm ég vissi bara ekki hvort hann væri fráskilinn að austan...
ég meina... ljótur er afstætt :)

16:10  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Vó maður er bara að missa af hérna að kíkja ekki inn nema einu sinni á dag!! Kommenta kerfið bara að fyllast hérna. Skemmtilegur leikur samt ;)
Knúsur
dagga

18:22  

Skrifa ummæli

<< Home