28 janúar 2007

Jeiii

Lítill fugl hvíslaði því að mér að Boston mætti fara að undirbúa sig... því jafnvel væri von á New York búunum Ólöfu og Gumma um næstu helgi :*) Meira um það síðar ..
Hidda kom í dag og við horfðum á þennan þvílíkt spennandi leik. Ísland - Slóvenía. Við uppskárum sigur og þ.a.l. amk þriðja sæti í milliriðlinum öruggt og því komin á topp 8 :) Haldið að það sé :) Hins vegar eru ekki eins góðar fréttir að Logi og Guðjón Valur séu meiddir.... Vonum bara að Inga nuddari og co tjösni þeim saman :)
Ætla að halda áfram að læra aðeins og fara síðan að lúlla mér.... Ásdís og Doddi mæta síðan upp úr hádegi á morgun og þá verður tekist á við þýska stálið.. JA WOLL... :) Island über alles... og hana nú! Wir gibt sieben Meter und er gibt zwei Minuten Straffe... die isländische Mannschaft ist sehr gut.
Bis bald!
Fräulein Lara Schneider

2 Comments:

Blogger Guðrún bullaði...

Hallóóóó er það leyndó eða???? Segðu mér plíííííís!!

07:10  
Blogger Unnur Stella bullaði...

Það er eins gott að þú verðir dugleg að senda góða strauma á morgun, því liðið VERÐUR að vinna þessa Danverja svo ég geti nú mætt svolítið sjálfsumglöð og ánægð í skólann á mánudaginn ;o)
Baráttukveðjur til ykkar áhorfendanna á morgun.
Bestu kveðjur
Unnur Stella Baunverji

10:52  

Skrifa ummæli

<< Home