03 maí 2007

Jeiii!

Jeiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii sinnum 1000!
Núna eru bara 3 tímar í að Nína lendir... ásamt fríðu föruneyti! því með henni í för eru engin önnur en Henný mín og Kristján. Þetta er búið að vera í spilunum lengi og búið að vera erfitt fyrir þær að halda þessu leyndu. Já leyndu, því Kristján á afmæli á morgun og Henný var svo yndisleg að bjóða honum út og það surprise. Henný og Kristján vinna á sama stað og því er undirbúningur fyrir þessa ferð búinn að vera mun meiri en ella. Það var svaka plott í gangi og fékk Kristján fundarboð fyrir um viku að hann og samstarfsmaður hans væru að fara á auglýsingardílsfund í Leifsstöð. Þeir lögðu af stað í dag óvitandi að Henný og Nína biðu hans í Leifstöð. Heyrði í þeim rétt áður en þau fóru upp í vél og heppnaðist þetta víst ekkert smá vel. Honum snarbrá og var þvílíkt lukkulegur með þetta allt saman. Ég fæ svo söguna beint í æð þegar ég sæki þau út á völl EFTIR ÞRJÁ KLUKKUTÍMA!
Jeiiiiiiiiiiiiiiii það verður svo gaman hjá okkur um helgina :)
Yfir og út...
LáRa happy GiRL ;)

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

Oh hvað ég er búin að hugsa mikið til ykkar - hafið það öll alveg hrikalega gott í yndislegu Boston!!!

08:38  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Frábært loksins komið að þessu, hafið það alveg svakalega gott. þetta verður án efa yndislegt hjá ykkur.

Bryndís

11:20  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Hæ,
Þið getið horft á Eurovision á netinu á heimasíðu finnska sjónvarpsins. Veit samt ekki linkinn á það

12:24  

Skrifa ummæli

<< Home