07 október 2006

Versli Versl :)

Hæbb,
Við erum vaknaðar, hressar og kátar. Sátum á Cheesecake Factory til að vera hálftólf og höfðum það kósý og slúðruðum yfir blushflösku :) Við ákváðum bara að vera rólegar og fara bara beinustu leið heim með ostakökurnar okkar.... Jammí rauðvín og Cheesecake ostakökur... gerist ekki betra :)
Núna er planið að skreppa upp í Galleria Mall og skoða í búðir... jafnvel versla ekkva ha ha hummm.. Látum ykkur vita hvernig það gekk á morgun.
Í kvöld er svo planið að borða á Mexíkóskum stað á Boylston Street og kíkja svo á Comedy Club með Möggu ...... Látum ykkur vita þegar frekari plön liggja fyrir....

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

Mikið rosalega var gaman að skála við ykkur frænkur á laugardagskvöldið. Alveg skemmtilega magnað hvað skype og webcam geta gert skemmtilegt partý á milli landa :)
Haldið í gvuðanna bænum áfram að vesla frá ykkur allt vit.
Knúsur
Dagga

12:03  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Við bíðum spent eftir að nýr dagur renni upp í Boston svo að við fáum að heyra hvort þið versluðuð eitthvað í Galleria Mall :)

15:40  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Æi farðu nú að blogga kona! Maður kíkir hérna minnst einu sinni á dag til að athuga hvað er spennó að gerast í Boston en maður fær bara ekki að vita neitt - við erum hérna að tala um upplýsingaveitu sem er ákaflega mikilvæg fyrir okkur skinnin þín sem sitjum bara á klakanum.
Þrátt fyrir bloggleysi sendi ég þér knúsur og kossa og vona að þú farir að bæta þig ;)
Dagga

12:48  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Jæja Lára ... ég held að ég þurfi bara að fara blogga fyrir þig :)

19:44  
Blogger Hulda bullaði...

Heyrru eg aetla bara ad agreea hja teim herna fyrir ofan... madur er farinn ad gefa ser tima til ad kikja herna a hverjum degi... en tid erud kannski bara enta ad versla hummmm...by the way eg mundi emailid mitt... tad er sem sagt h.simire@tesco.net og eg man passwordid lika otrulega cool

09:00  

Skrifa ummæli

<< Home