18 september 2006

Ta da da rammm....

.... loksins loksins kemur það sem þið hafið verið að bíða eftir svo allt of lengi!

Ég sem hélt að ég yrði eitthvað einmanna og myndi veslast upp og deyja.. Tja svo er nú ekki því það er bara hellings hellingur alltaf að gera :) Sem betur fer ... and I´m loving it :)
Eftir að Nína fór, hellti ég mér út á námið af fullum krafti enda búin að koma mér vel fyrir og íbúðin mín orðin ofsalega sæt og fín... Sjá myndir hér fyrir neðan. Helgin fór nánast í það að gera heimadæmi fyrir daginn í dag...ekki nema 18 bls... Þokkalegur afrakstur það!
Ég og Ásdís fórum í þvílíkan kraftgöngutúr í gær meðfram Charles River, fyrir þá sem ekki vita þá er það stóra áin sem m.a. skilur að Boston og Cambrigde.. Þar ákváðum við að við myndum fljótlega setja niður "skipulag" sem væri á þá leið að við færum í einn svona massífan göngutúr amk einu sinni í viku, einu sinni í viku í sund og hina dagana í ræktina... Lýst þokkalega vel á það samhliða þess að maður drekkur vatn út í eitt og borðar hollan og góðan mat! Allar uppskriftir að skemmtilegum, auðveldum og hollum mat má senda á laraxgudrun@gmail.com
Játs.. ég er komin með Gmail og Facebook og allt það sem Ásdísi finnst kúl :) Og ég verð að segja það að mér finnst það bara kúl líka... ekki nema 2500 MB og endalausir möguleikar...
Og Ásdís... það er aldrei að vita nema ég fari að nota bara eitt email... :)
Ég ætlaði alltaf að láta þessa bloggfærslu innihalda raunir mínar við það að koma mér fyrir í Ameríku... Ef ég hefði bloggað daglega um allt sem gekk ekki upp í fyrstu tilraun þá hefði ég "fyllt internetið" ef það væri hægt :) Þær sögur verða því bara að bíða betri tíma en hér eru smá highlights:
  • Fórum í Ikea 30. ágúst og sigtuðum út hvað væri kúl og hvað ekki og hvað ég væri líkleg til að kaupa
  • Laugardagurinn 2. september var IKEA dagurinn mikli! Það var nánast eins og það væri verið að selja síðustu húsgögnin í heiminum... fjöldinn af fólkinu og lætin og æsingurinn að ná þessu og hinu.. við Nína þurftum bókstaflega að hlaupa á milli rekka til að ná í þær vörur sem ég hafði valið. Og að sjálfsögðu var helmingurinn búinn... þar sem ALLIR nýir stúdentar í Massachusetts voru í IKEA þennan dag! Við vorum ekki nema 9 klukkutíma í IKEA og löbbuðum út úr búðinni klukkan 23:00... Held meira að segja að Nína hafi overdozað á IKEA og þá er nú mikið sagt.
  • Við Nína leigðum okkur svona UHaul bíl til að flytja allt heila klabbið heim... og það var hægara sagt en gert að leigja bílinn en gekk þó á endanum..... :) Gummi kom síðan þarna rétt eftir miðnætti og hjálpaði okkur að bera dótið upp.
  • Ásdís og Doddi skelltu sér síðan í vikuferð til Mexíkó og var ég þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa afnot af bílnum þeirra meðan þau voru í burtu. Sem var eins gott því við þurftum að fara tvisvar í IKEA.. í annað skiptið til að sækja restina af dótinu... (allt nema skrifborð og sófaborð sem kemur ekki fyrr en í okt) og í hitt skiptið til að skipta því sem var gallað! Nýttum okkur líka bílinn þegar ég fór í Target, Best Buy og Bed, Bath and Beyond að kaupa fulllllllllllt af dóti...
  • Þá var komið að því að panta sjónvarpið góða... (ásamt dvd og prentara)!
  • Hljómar auðveldlega... en eftir 1 klst samtals við mjööög almennilega Circuit City gæja kom í ljós að ég gat ekki pantað þetta nema vera með AMERÍSKT KREDITKORT! sem þú getur ekki fengið nema fá social security number og til að fá það þarftu að fá eitthvað annað og til að fá þetta annað þarftu að fá hitt og svona er allt í hring í Ameríkunni góðu :)
  • Humm... Doddi í Mexíkó og hvað þá?
  • Hringja í elsku Doddý í Mississippi og hún lánaði mér fyrir herlegheitunum!
  • Nokkrum dögum seinna kom sjónvarpið... hummmm eitthvað hafði bílstjórinn keyrt óvarlega því hann opnaði TVið út í bíl og þá var sjónvarpið brotið, þ.e. sprunga eftir öllum skjánum. Great... þarf að bíða eftir nýju sjónvarpi :) En sem betur fer kom það sama dag...
  • Þá var það cable og internet.... Það gekk nú eins og í sögu að panta það þangað til gæjinn kom að setja það upp að þá gleymdi hann að koma með nokkra hluti sem ég hafði pantað þannig að hann þurfti að koma aftur :)
  • Hummm er ég búin að telja flest upp .... já.. það verður hrikalega gaman að borga visareikninginn sinn um mánaðarmótin... held ég hafi bara aldrei eytt svona miklu á einni viku :) og það var hreinlega bara alls ekkert leiðinlegt :) Kortið kólnaði ekki á milli hverrar straujunnar á fætur annari :)
Jæja ég vil ekki láta þessa upptalningu hljóma eins og raunasögu en í raun var þetta hellings skemmtilegur tími og það fyndna er að þegar ég hringdi í Ólöfu og Gumma í New York þá voru þau búin að lenda í sömu böggunum allsstaðar... :) En svona er þetta bara víst :)
Það er rosa fínt í skólanum. Er í tímum á mánudagskvöldum frá 6-9.30 á kvöldin og á fimmtudögum á sama tíma. Milli þess er maður að læra eða bralla ekkva skemmtilegt. Það er ekkert smá fyndið samt að örugglega 90% af international stúdentunum eru Indverjar og það er alveg magnað að heyra marga hverja þeirra tala! Það er eins og í góðri grínmynd og oft vantar mig einhvern af ykkur til að glotta til þegar þeir byrja að tala sína óskiljanlegu ensku :) En ég sat nú samt við hliðina á íslenskum strák í dag sem er með mér í báðum tímunum og við náðum að hlæja að þeim :)
Já hvað segiði... viljiði sjá myndir :)

1. sept: Afhending á íbúðinni :)

Útidyrahurðin lengst í burtu, þar til hægri er eldhúsið og á móti eldhúsinu er útifata/skóskápur og búrskápur. Hvíta hurðin á miðri mynd er ekki skápur heldur er Air Condition Unitið þarna inni, ásamt straubretti og fl. Þar til vinstri er baðið og síðan hurðin inn í svefnherbergið mitt :)

Eldhúsið mitt

Meira að segja uppþvottavél og alles :)

Núna stend ég við útidyrahurðina, vinstra megin er eldhúsið. Horft inn í stofu. Svefnherbergið til hægri og eldhúsborðið mitt til vinstri. :)

Svefnherbergið mitt. Það er sem sagt parket á allri íbúðinni, nema teppi í svefnherberginu og flísar í eldhúsinu og á baðinu. Einn veggurinn í svefnherberginu og einn lítill veggur í stofunni er svona múrsteinsveggur sem mér finnst bara rosalega sjarmerandi.

Núna stend ég við gluggann í svefnherberginu. Að sjálfsögðu er þvottavél og þurrkari hjá Láru beib sem er víst ekki mjög algengt í íbúðunum hérna í kring. Við hliðina á þeim skáp er fataskápur. Að sjálfsögðu er hægt að loka báðum skápum þannig að þetta verður allt mjög smart.

UHaul bíllinn sem við leigðum til að fara í IKEA :)

Gummi kom og hjálpaði okkur að bera inn úr bílnum.

Þetta er bara eftir fyrri verslunarferðina í IKEA. Annað eins kom nokkrum dögum seinna.

Úff Nína á sko mikið verk fyrir höndum þarna á þessu stigi híhíhíh

Bárum upp í íbúð u.þ.b. 4 tonn af pokum þessa fyrstu viku. Þetta er bara sýnishorn af öllu sem við versluðum. En mikið var það hrikalega gaman samt :)

Nína gaf mér innflutningsgjöf

Nína í essinu sínu! Svona sat hún nánast stanslaust í heila viku!

Ég hefði aldrei getað þetta án þín Nína - takk fyrir mig!!

Ég meina ég gerði eitthvað :) Ég braut saman kassana... og setti saman lampana... með misgóðum árangri þó ... hummm við skulum ekkert ræða það neitt frekar :)

Baddý skvísa var að vinna hérna í New Hampshire, 40 mín fyrir ofan Boston og var hún fyrst, af vonandi mörgum, til að prufa svefnsófann góða.

Borðstofu/Eldhúsborðið mitt

Ég og Nína héldum okkar eigin Sushi veislu :*)
Marimekko diskamotturnar fékk ég einmitt í afmælisgjöf frá Nínu ásamt ofnhönskum og tösku og stílabók - allt í Marimekko munstrinu... hriiiikalega flott

Loksins komin kommóða þannig að ég gat gengið frá öllum fötunum mínum!

Í fyrsta skipti í laaaaangan tíma er þvílíkt skipulag á fötunum mínum. Öll fötin mín hanga inn í skáp og kommóðan er svo skipulögð þökk sé skipulagshólfum IKEA að mamma á eftir að fá hjartaáfall þegar hún sér hvað allt er skipulagt hjá mér :)

Nína á yfirvinnukaupi :*) Setja upp nýja gardínustöng og hengja upp nýjar gardínur.

Slakað á eftir erfiðan vinnudag í stofunni fallegu.

Svefnherbergið mitt

Ótrúlega kósí og gott rúm

Baðið mitt góða - rosa snyrtilegt og fínt


Smá blátt þema á baðinu

My kitchen :)

Fallega 37¨Panasonic Plasma sjónvarpið mitt

Fallega stofan mín... Hvernig lýst ykkur á?

Kerti í arninum og allt maður :) Dagga, heldurðu að það sé :)


Vona samt að þið fáið ekki á tilfinninguna að þið séuð að skoða IKEA bæklinginn! tíhíhíhíh en bara látið í ykkur heyra í kommentboxinu hér fyrir neðan og ég skal með glöðu geði svara öllum fyrirspurnum :) Jæja, þá er ég búin að blogga - loksins - loksins - meðan ég horfi á 3 þætti af Grey´s Anatomy... og nú er mál að fara að sofa enda klukkan orðin hálffjögur... usssss......

Góða nótt :*)

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

VÁÁÁÁ ég fæ alveg tár í augun núna að vera svona langt í burtu frá þér - þetta er ekkert smá hrikalega kósý hjá þér. Ánægð með að þú skelltir kertum í arininn skvísípæ ;)
Nú fer hraðsöfnun af stað til að komast til Boston eins fljótt og oft og hægt er.......
Knúsur af klakanum
Dagga

06:56  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Hæ hæ Lára

Til lukku með þessa fínu íbúð þína ;)

Annars manstu bara að hitta mig face to face á Skype-inu....verð nú að testa þessa fínu græju mína þ.e. web-camið....sem opnar nýjar víddir og nýja tekjumöguleika í lífinu....hahahaha kannski ég fari bara að segja upp fljótlega og fækka fötum á netinu fyrir örugglega mun meiri pening :)

Hafðu það gott mín kæra;

Kisses Ásta

08:29  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Skvísi pæ ... ekkert smá flott hjá þér. langar rosalega að koma og lúlla í sófanum hjá þér ;) Vonandi líður þér rosa vel í nýju íbúðinni þinni ..
stór koss og knús
Bryndís

11:40  
Blogger Guðrún bullaði...

ÆðIslega Kósí hjÁ þér SÆta mín!!!!!!! HlaKKA rosa til að koMa Í HeimsÓkn. Stolt af þér ;)

14:14  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Ég þarf líka að koma aftur til þín til að laga tvær skúffur :)

Ég ætti eiginlega að koma út og fara að vinna hjá IKEA.
Þótt ég hefði verið komin með ógeð af þessari búð.
En ég fór í IKEA hér heima um daginn og það var bara fínt. Að bera þessar tvær búðir saman þá er IKEA hér heima eins og litla búðinn á horninu í götunni þinni (t.d Rangá). Auðvitað kom ég ekki tómhent út ... hvernig er það hægt þegar maður fer í IKEA. Ég er mjög stolt af þeim sem geta farið í IKEA og ekki eitt NEINUM pening.

Kv.
Nína Björk

07:18  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Til hamingju með fínu íbúðina.. þetta lítur alveg svakalega huggulega út :-)

Kv. Brynja

11:47  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Nína kom til mín um daginn og sýndi mér allar myndirnar sem þið tókuð þannig að ég fékk forsmekkinn af íbúðinni þinni. Þetta er glæsilegt hjá þér og ég er afar stolt af þér að hafa getað sett saman lampann.... Þú ert yndisleg og heimilið þitt líka.

Love frá okkur í Lyngbrekku
Henný

12:28  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Vá. svaka flott

Lára!
Er búin að benda Döggu á að
fá sér Webcam og fara drýgjatekjurnar til að komast út til þín og ég með ;-)

Vinkona mín yrði ánægð með þetta ikea heimili enda að vinna hjá ikea.

Kveðja Helga Gísla

15:46  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Æðislega fínt hjá þér kvísa. Hlakka til að koma í heimsókn.

11:20  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Ekkert smá flott hjá þér skvís. Það verður gaman að koma að heimsækja ykkur Bostongellurnar einhvern tíman í nánustu framtíð...

17:33  

Skrifa ummæli

<< Home