17 maí 2007

Niagara Falls

Jæja, þá byrjar generalprufan fyrir Roadtrippið...
Við Nína erum rétt í þessu að fara að leggja í hann í 7 tíma akstur upp til Niagara Falls. Við ætlum að gista Canada megin og erum í rosa fínu herbergi með útsýni yfir báða fossana.
Þetta verður ekkert smá gaman.. og ég lofa að taka milljón myndir eins og mér einni er lagið ;)
Hvur veit nema við hendumst til Toronto í leiðinni....
Komum aftur á laugardagskvöld.. þangað til þá - hafið það gott ....

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus bullaði...

Ohh þetta verður yndislegt hjá ykkur, svo mikil sálarhreinsun að fara út í náttúruna og finna öflin.

Góða skemmtun og hlakka til að sjá myndir.

Ætluðum við svo ekki að kíkja út eitt kvöldið? Mér veitir ekki af smá fríi frá strákunum.
Er kannski stemmari fyrir Bankok á sun.
Verðum í bandi,
Masi

11:52  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Oh hvað þetta verður næs hjá ykkur. Vona nú að ég heyri aftur í þér eithvað smá pínu pons eftir Niagra falls og áður en þið leggið í stóru ferðina.
Njótið annars bara lífsins og alls þess besta sem það hefur upp á að bjóða ;)
Knúsur og kossar
Dagga

18:43  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Uss þetta er náttla bara rugl;) þvílíkt og annað eins.
Hafið það rosalega rosalega næs í míní trippinu ykkar.

Koss og koss og koss Bryndís

13:13  
Anonymous Nafnlaus bullaði...

Ekki á morgun, heldur hinn :)

10:42  
Blogger Guðrún bullaði...

Been there, done that;)
Is a very næs waterfall.

12:14  

Skrifa ummæli

<< Home